Steindi ehf.Fá tilboð
Um okkur

Sláum í gegn — snyrtilega

Steindi sérhæfir sig í steinsögun, kjarnaborun og múrbroti. Við eigum tækin sjálf, fjarlægjum efnið og skilum svæðinu hreinu.

Fjarstýrð brotvél brýtur kjallaravegg við íbúðarhús
Veggjasögun í stóru rými, beltavagn og ryksuga á gólfinu
Um okkur

Reyndir menn sem bera virðingu fyrir verkinu

Steindi sérhæfir sig í steinsögun, kjarnaborun og múrbroti. Starfsmennirnir hafa langa reynslu, vinna skipulega og ganga vel um — og leggja áherslu á að verkið trufli sem minnst.

Steindi vinnur náið með systurfyrirtækinu Heit gólf. Þegar gólf er opnað fyrir nýjar lagnir eða gólfhita getum við tekið allt verkið — frá sögun og broti til fræsingar, lagna og flotunar.

Ferlið

Svona gengur verkið fyrir sig

Frá fyrstu skoðun þar til svæðinu er skilað hreinu — þú veist hvað verkið kostar áður en við byrjum.

  1. Brothamar brotvélar brýtur steypu og járnabindingu
    01

    Frí skoðun

    Við komum á staðinn, metum verkið og ráðleggjum um bestu leiðina.

  2. Veggjasög fest á braut á steyptum vegg
    02

    Verðtilboð

    Þú færð verðtilboð og veist hvað verkið kostar áður en við byrjum.

  3. Sagaður steypuflekur hífður úr vegg
    03

    Sögun og brot

    Við sögum, borum og brjótum með tækjum sem henta verkinu og aðstæðum.

  4. Beltavagn fullur af brotinni steypu á leið út úr húsi
    04

    Hreinsun og skil

    Efnið fer með okkur og svæðið er hreinsað áður en við förum.

Tækjalisti

Réttu tækin í hvert verk

Við eigum tækin sjálf og mætum með það sem verkið kallar á — hvort sem það er lítið gat fyrir lögn eða heil plata sem á að fjarlægja.

  • Steinsagir af öllum gerðum
  • Kjarnaborvélar
  • Öflugar brotvélar
  • Gámabíll
  • Krani
  • Bómukrani með veggbrjót
  • Slípivélar
  • Ryksugur
HusqvarnaCaterpillarMercedes-Benz
Brotvél keyrð upp rampinn inn í vinnubíl
Brotvélin fer beint úr bílnum inn á verkstaðinn
Tilboð

Fáðu tilboð

Segðu okkur frá verkinu og sendu myndir ef þú átt þær. Við höfum samband, komum og skoðum — þér að kostnaðarlausu og án skuldbindingar.

HringjaFá tilboð